Bygg
Bygg

Fréttir

Lýsingin á ekki að vera truflandi
Lýsing á strandleiðinni í Reykjanesbæ er með lágum staurum.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 5. febrúar 2022 kl. 10:26

Lýsingin á ekki að vera truflandi

– fyrir þá sem vilja skoða næturhimininn

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vísaði á dögunum erindi Birkis Rútssonar varðandi lýsingu göngustíga til umhverfis- og skipulagsnefndar sveitarfélagsins. Á fundi Skipulagsnefndar 19. nóvember 2021 lagði nefndin til að lýsing göngustíga yrði sett á fjárhagsáætlun næsta árs. Birkir biður um að göngustígar meðfram strandlengjunni fái að haldast rökkvaðir svo hægt sé að njóta næturhiminsins áfram.

„Núna er í skoðun lýsing nokkura göngustíga til að bæta öryggi þeirra. Skoðaðar verða ýmsar lausnir og þar á meðal lýsing með lágum staurum (<1m) sem eiga ekki að vera truflandi fyrir þá sem vilja skoða næturhimininn,“ segir í afgreiðslu skipulagsnefndar á málinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn