Lýsa vonbrigðum yfir ágreiningi vegna húsnæðismála BS
Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja afhentu í morgun eigendum Brunavarna bréf þar sem þeir lýsa undrun sinni og miklum vonbrigðum yfir þeim ágreiningi er virðist vera milli eignaraðila BS og þeim seinagangi er varðar endurbætur og lausnir á framtíðarhúsnæði Brunavarna Suðurnesja. Bréfið er hér að neðan:
Eignaraðilar Brunavarna Suðurnesja:
Bæjarstjórn Garðs, bæjarstjórn Reykjanesbæjar og bæjarstjórn Voga.
Reykjanesbær, 20. mars 2006
Undirritaðir vilja fyrir hönd starfsmanna Brunavarna Suðurnesja lýsa undrun sinni og miklum vonbrigðum yfir þeim ágreiningi er virðist vera milli eignaraðila BS og þeim seinagangi er varðar endurbætur og lausnir á framtíðarhúsnæði Brunavarna Suðurnesja. Það er með ólíkindum að fylgjast með framgangi þessa máls í margra ára baráttu okkar um að þið uppfyllið reglugerðir sem ykkur eru settar er varðar öryggi starfsmanna, aðbúnað og hollustuhætti á núverandi húsnæði slökkviliðsstöðvar BS. Ítrekað hefur þetta mál verið rætt hjá stjórn BS þar sem betrumbótum hefur verið lofað af bæði stjórn og stjórnendum. Líkt og áður hefur verið komið að þá er aðstaða starfsmanna algjörlega óviðunandi og af þeim sökum krefjast starfsmenn enn og aftur bóta á máli þessu, svo að aðstaða starfsmanna geti af minnsta kosti talist sambærileg öðrum atvinnuslökkviliðum í landinu.
Á starfsmannafundi er haldin var þann 15.02.2006 í kjallara slökkvistöðvar BS var starfsmönnum kynnt með formlegum hætti af slökkviliðsstjóra og stjórnarformanni BS, að neðangreind tillaga meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hafi verið samþykkt af stjórn BS þann 21.12.2005 og hafi verið lögð fyrir eignaraðila án athugasemda:
“Bæjarstjórn Reykjanesbæjar leggur áherslu á að nú þegar verði hugað að byggingu nýrrar slökkviliðsstöðvar fyrir sveitarfélagið, sem auk þess gæti mögulega nýst fyrir hluta af starfsemi Varnarliðsins eða önnur sveitarfélög á svæðinu.
Staðsetning ofan Iðavalla, við Reykjanesbraut er talin mjög hentug með tilliti til styttingar útkallstíma og fjölgunar íbúa í nýjum hverfum nær Reykjanesbraut og er Reykjanesbær reiðubúinn að leggja það land undir slökkvistöð.”
þar kom einnig fram tillaga formanns stjórnar BS:
Formaður leggur til að honum ásamt Sigmundi slökkviliðsstjóra verði falið að fylgja samþykktri tillögu Reykjanesbæjar um húsnæðismál B.S., sbr. fundargerð Reykjanesbæjar dags 21. des 2005. Að auki munu sömu aðilar kanna hug nágranna slökkviliðanna um aukið samstarf með tilliti til þessar breytinga, var tillagan samþ.”
Líkt og áður hefur komið fram þá var þetta samþykkt af stjórn BS og lagt fyrir eignaraðila án athugasemda.
Það fylgdi þessum góðu fréttum að miðað við þetta yrði ný slökkvistöð líklega starfrækt í lok árs 2007 eða byrjun 2008. Að mati starfsmanna voru þetta gleðifréttir, sérstaklega þar sem eignaraðilar BS hafi greinilega ætlað að taka þetta mál traustataki. Í kjölfarið óskuðu stjórnendur slökkvistöðvarinnar eftir því að mannhaldið kæmi að hönnun og hugmyndavinnu er myndu varða þessa nýju stöð og voru tveir fagmenn á því sviði kjörnir til verksins.
Það varð því mikið áfall og vonbrigði þegar við fengum fréttir af síðasta stjórnarfundi BS þann 16.03.2006 og þeim greinilega viðsnúningi er hefur orðið á hluta stjórnar BS í þessum málum. Þessir sömu aðilar voru annarrar skoðunar á stjórnarfundi þeim er haldinn var þann 21.12.2005 og er þessi viðsnúningur algjörlega óskiljanlegur. Af þessum sökum spyrjum við einfaldlega hver framtíðaráætlun um húsnæði BS sé? Hvenær má vænta að einhver haldbær og trúanleg niðurstaða komist í málið?
Miklar framkvæmdir hafa verið af hálfu bæjarfélaga hér á Suðurnesjum á þessu kjörtímabili, þar sem miklum fjármunum hefur verið eytt í uppbyggingu. Samhliða því hefur svæðið stækkað og orðið mun umfangsmeira heldur en það var áður. Af þeim sökum má ekki gleyma þeim grunnþörfum sem svæðið þarfnast sem er öryggi íbúa þess. Ef þetta er vanrækt á einn eða annan hátt þá kemur hið svokallaða áhættustig að aukast til muna, sem án efa kemur engum til góða og því sem fram líða stundir auka kostnað sveitarfélaganna. Það starf sem við vinnum er krefjandi og hefst ekki nema með dyggri aðstoð allra þeirra aðila sem að því koma, þá eignaraðilum BS.
Að lokum viljum við minna á það að fyrirbyggjandi aðgerðir eru þær sem skila árangri ekki bara í þessu tilviki, heldur öllum.
Reykjanesbær 20.03.2006
F.h. starfsmanna B.S.
Ari Elíasson
Trúnaðarmaður B.S og
formaður deildar B.S innan L.S.S
(Landsamband slökkviliðs-og sjúkrafl.manna)
Rúnar Eyberg Árnasson
Formaður F.S.B.S
(Félag starfsm.Brunavarna Suðurnesja)