Fréttir

Lýsa vonbrigðum með Landsbankann
Miðvikudagur 17. september 2014 kl. 09:49

Lýsa vonbrigðum með Landsbankann

– skýtur skökku við að fyrirtæki í eigu ríkisins skuli ekki axla samfélagslegar skyldur sínar

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir vonbrigðum með þá ákvörðun Landsbanka Íslands að segja upp starfsmönnum við útibú bankans í Reykjanesbæ og flytja á annan tug starfa af svæðinu. Þetta svæði hefur mörg undanfarin ár glímt við mikið atvinnuleysi og erfitt hefur verið fyrir fólk með framhaldsmenntun að finna störf við hæfi“. Þetta kemur fram í bókun sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti og sendi frá sér í gær. Allir bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ skrifa undir bókunina.

Þá segir: „Því skýtur skökku við að fyrirtæki í eigu ríkisins skuli ekki axla samfélagslegar skyldur sínar og hlúa að því fólki sem hefur sýnt fyrirtækinu tryggð í gegnum tíðina“.

Undir þetta skrifa Böðvar Jónsson, Kristinn Jakobsson, Friðjón Einarsson, Anna Lóa Ólafsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Elin Rós Bjarnadóttir, Jóhann Sigurbergsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson, Gunnar Þórarinsson og Árni Sigfússon.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024