Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Lýsa áhyggjum af þróun fjárveitinga til HSS
Sunnudagur 2. júlí 2023 kl. 06:16

Lýsa áhyggjum af þróun fjárveitinga til HSS

„Fagráð HSS lýsir yfir áhyggjum af þróun fjárveitinga til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í ljósi stóraukins íbúafjölda á svæðinu sbr. nýuppfærða skýrslu Deloitte, sem birt er á heimasíðu HSS.“ Þetta kemur fram í ályktun fagráðs Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Samkvæmt skýrslunni hefur fólksfjöldi aukist um tæplega 50% á síðustu fimmtán árum en fjármagn til stofnunarinnar ekki fylgt þeirri þróun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Íbúum Suðurnesja hefur fjölgað um tæp 50% á árunum 2008–2023 en til samanburðar hefur íbúafjöldi á landinu öllu aukist um 22,9% á sama tíma.

Samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar fjölgaði íbúum á Suðurnesjum um 6,7% á milli ára 2022 og 2023. Að því gefnu og byggt á fjárlögum ársins 2023 hefur heildarfjárveiting á hvern íbúa lækkað um tæp 27% á tímabilinu 2008–2023.

Stofnunin sinnir heilbrigðisþjónustu sem flokkast á þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarrými. Fjárveiting til sjúkrasviðs á hvern íbúa hefur, miðað við gefnar forsendur um þróun íbúafjölda, lækkað um 50% á tímabilinu 2008–2023.“

Mikil jákvæð uppbygging hefur átt sér stað á HSS undanfarin misseri sem kemur skjólstæðingum og starfsfólki til góða og mikilvægt að fá fjármagn til að fylgja þeirri uppbyggingu eftir, segir í ályktuninni.

Fagráð HSS hefur áhyggjur af því að slík vanfjármögnun muni hafa áhrif á faglega þróun og þjónustu stofnunarinnar og HSS muni ekki geta staðið við þær skuldbindingar sem lög um heilbrigðisþjónustu fara fram á, líkt og Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri stofnunarinnar hefur bent á.

Forstjóri HSS leitar til umboðsmanns Alþingis vegna heilbrigðisráðherra

Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir í aðsendri grein á vef Víkurfrétta að verulegur ágreiningur hafi verið milli sín og núverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þórs Þórssonar, varðandi skyldur stjórnvalda um fjármögnun á stjórnarskrárvarinni þjónustu við íbúa Suðurnesja. Markús hefur því tekið ákvörðun um að óska eftir áliti umboðsmanns Alþingis á þeim ágreiningsmálum enda hefur verulega skort á efnislegum svörum af hálfu ráðuneytisins við erindum sínum og niðurstöðum skýrslna Deloitte.

„Þá hef ég einnig ákveðið að óska eftir að umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra, með þátttöku ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins, gagnvart mér þegar ég sinnti starfsskyldum mínum sem felast í að upplýsa um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýna stjórnvöld. Sú framganga er að mínu mati hvorki í samræmi við góða stjórnsýslu né siðareglur ráðherra þar sem ég hef verið beittur óeðlilegum þrýstingi og orðið fyrir óviðunandi framkomu,“ segir Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri HSS í greininni.