Bygg
Bygg

Fréttir

Lyftingu Guðrúnar Gísladóttur KE frestað um mánuð
Fimmtudagur 27. mars 2003 kl. 12:00

Lyftingu Guðrúnar Gísladóttur KE frestað um mánuð

Ákveðið hefur verið að fresta tilraunum til að lyfta Guðrúnu Gísladóttur KE af hafsbotni í einn mánuð og er þessi ákvörðun tekin vegna slæmrar veðráttu sem verið hefur á svæðinu, segir á vefnum skip.is. Fyrirhugað er að hefjast handa að nýju 23. apríl nk. „Við tókum þá ákvörðun að fresta lyftingunni fram yfir páska í samráði við norsku mengunarvarnarstofnunina, sveitarstjórnina og köfunarþjónustuna. Það var einfaldlega gert vegna þess að allar lægðir sem koma frá Íslandi strauja hér beint yfir og hér er 15 til 20 metra vindhraði á sekúndu upp á hvern einasta dag. Það hefur verið þokkalegasta veður fyrir sunnan Þrándheim en hér norður frá hefur verið stöðugur ófriður“, segir Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem stjórnar björgunaraðgerðum, í samtali við Skip.is.
Að sögn Ásgeirs Loga er búið að gera allt sem hægt er til þess að tryggja að olía leki ekki úr tönkum skipsins. Nú á aðeins eftir að sökkva niður tveimur stórum tönkum að skipinu en þeir verða fylltir af lofti og notaðir til að ná skipinu upp af hafsbotni. Auk þess verður lofti dælt í sjókælitanka skipsins og andveltitanka og þannig fæst aukið flotmagn.

Fleiri fréttir áskip.is.
Bílakjarninn
Bílakjarninn