Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Lyfjum stolið úr bát í Grindavíkurhöfn
Frá Grindavíkurhöfn.
Laugardagur 14. janúar 2017 kl. 16:25

Lyfjum stolið úr bát í Grindavíkurhöfn

Brotist var inn í bát í Grindavíkurhöfn í vikunni og lyfjum stolið. Rúða stjórnborðsmegin hafði verið brotin með slaghamri og fleiri tólum og sá eða þeir sem þar voru að verki komist inn með þeim hætti. Úr lyfjaskáp bátsins hafði verið tekið eitthvert magn af verkjalyfjum og einnig var farið inn í klefa skipverja og rótað þar til.

Ekki er ljóst hvort einhverju fleiru en verkjalyfjunum var stolið en lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

Public deli
Public deli