Lyfjaverksmiðja í gamla hersjúkrahúsið?
Til greina kemur að byggja upp lyfjaverksmiðju lyfjafyrirtækisins Alvogen í gamla sjúkrahúsi varnarliðsins á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, nú Ásbrú. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins sem birtir frétt um málið á forsíðu blaðsins í dag, en áformin fengust ekki staðfest hjá Alvogen.
Lengi stóð til að byggja upp einkasjúkrahús Iceland Healthcare í byggingunni, þar sem bjóða átti upp á liðskipta- og offituaðgerðir.
Þrátt fyrir að talsvert hafi verið unnið í endurbótum á húsinu hefur ekkert enn orðið af fyrirætlunum
fyrirtækisins, sem leigði húsið af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar.
Róbert Wessmann er í forsvari fyrir bæði Iceland Healthcare og Alvogen. Alvogen hefur haft uppi hugmyndir um að byggja verksmiðju hér á landi um nokkurt skeið.
Í frétt Fréttablaðsins frá byrjun árs 2010 var til dæmis haft eftir Róberti að líklegt þætti að henni
yrði fundinn staður á Suðurnesjum, en þá voru reyndar áformin um einkasjúkrahúsið enn í vinnslu.
Alvogen er alþjóðlegt fyrirtæki sem er með yfir 100 ára rekstrarsögu og sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, segir í frétt Fréttablaðsins.