Lunningafullur af fiski tvo daga í röð
Sigtryggur ÍS kom til Sandgerðis undir kvöld lunningafullur af fallegum fiski.Fiskirí hjá smábátunum hefur verið með eindæmum gott. Karlarnir á Sigtryggi drógu 30 bjóð í dag og fengu 6 tonn af fiski, mest þorski. Þeir gerðu betur í gær, því þá lönduðu þeir 7,3 tonnum á sama bjóðafjölda.Myndin var tekin þegar löndun var að hefjast á tíunda tímanum í kvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi