LÚÐUÞJÓFNAÐARFARALDUR?
Í kjölfar skrifa VF um lúðufundinní Grindavík hafði Sigurlaug Tryggvadóttir, umsjónarmaður kirkjugarðsins á Stað samband og sagði staðsetningu fundarins í fréttinni alls ekki rétta. „Ég fann lúðurnar í ruslatunnu við kirkjugarðinn á Stað. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa aðkomunni. Þær voru þarna fjórar bundnar saman og svo illa útlítandi að ég sá ekki einu sinni hvaða fiskur þetta var. Maðurinn minn kippti af þeim einu merkinu og þannig þekktust þær. Mér finnst alvarlegt að henda þessu við kirkjugarðinn enda heilagur reitur í augum flestra.“ Vekur staðsetning fundarins upp þá spurningu hjá VF hvort fleiri hafi verið að verki við lúðuþjófnaðinn eða óskyldir aðilar þarna á ferð.