Loksins fór að rigna

Veðurspáin gerir ráð fyrir rigningu í dag og á morgun við Faxaflóa. Áttin verður suðlæg, 5-10 m/s en snýst í suðaustan 8-13 á morgun. Hiti verður á bilinu 11 – 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag: Sunnan 5-8 m/s og dálítil rigning á vestanverðu landinu, en annars hægviðri og léttskýjað. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og víða lítilsháttar væta. Hiti 11 til 16 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg átt og áframhaldandi væta víða um land, en fremur milt veður. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustanátt og kólnandi veður.
Mynd: Horft til Miðnesheiðar yfir Njarðvík nú áðan. Fremur grámyglulegt að sjá en við kvörtum ekki. VF-mynd:elg