Lokatölur í Reykjanesbæ: Traustur meirihluti Sjálfstæðismanna
Sjálfstæðisflokkur er enn með sjö fulltrúa og hreinan meirihluta nú þegar lokatölur hafa verið birtar í Reykjanesbæ. Framsókn er með einn og Samfylking þrjá. Vinstri grænir ná ekki inn manni.
Annars er niðurstaðan þessi:
B-listi: 868 (14%)
D-listi: 3278 (52,8%)
S-listi: 1762 (28,4%)
V-listi: 306 (4,9%)
Samtals talin atkvæði 6,647, þar af 593 utan kjörfundar. Auðir seðlar voru 376 og ógildir 57. Kjörsókn 71,03%.
Fulltrúar:
1. D - Árni Sigfússon
2. S - Friðjón Einarsson
3. D - Gunnar Þórarinsson
4. D - Böðvar Jónsson
5. S - Guðný Kristjánsdóttir
6. B - Kristinn Þór Jakobsson
7. D - Magnea Guðmundsdóttir
8. D - Einar Þórarinn Magnússon
9. S - Eysteinn Eyjólfsson
10. D - Baldur Þórir Guðmundsson
11. D - Björk Þorsteinsdóttir
Næstir inn:
12. S - Jenný Þórkatla Magnúsdóttir: 6.4% | 112
13. B - Silja Dögg Gunnarsdóttir: 8.0% | 69
14. D - Ingigerður Sæmundsdóttir: 43.4% | 1.421
15. D - Jóhann Snorri Sigurbergsson: 61.3% | 2.009
16. S - Hjörtur M. Guðbjartsson: 32.9% | 580
17. D - Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir: 79.2% | 2.596