Fréttir

Lokaspretturinn hafinn við Hafnargötu
Miðvikudagur 1. september 2004 kl. 17:05

Lokaspretturinn hafinn við Hafnargötu

Starfsmenn Nesprýði tóku hressilega á því í dag þegar ljósmyndari Víkurfrétta átti leið um Hafnargötu í dag.

Þeir eru nú að leggja lokahönd á frágang við hringtorgið á gatnamótunum við Vatnsnesveg og verður gatan opnuð fyrir almennri umferð að því loknu.

Vegfarendur taka eflaust eftir því að mikil skál hefur verið steypt ofan í torgið og er það vegna þess að gert er ráð fyrir að setja þar tjörn og gosbrunn þegar fram líða stundir.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100