Lokafrágangur D-álmu: Verksamningur undirritaður í morgun
Ráðist verður í tæplega 80 milljón króna framkvæmdir við endurbætur á skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Jafnframt verður ráðist í lokafrágang D-álmu og á þessum framkvæmdum að ljúka næsta vor. Verksamningur vegna framkvæmdarinnar var undirritaður í morgun af Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, og fulltrúum verktakafyrirtækisins FB Festingar. Samningurinn tekur til síðasta hluta D-álmunnar eða innréttingar þriðju hæðar.
Innréttaðar verða tvær skurðstofur og ein minni aðgerðarstofa ásamt nauðsynlegum stoðrýmum fyrir þessa starfssemi á hæðinni, sem telur 1000 fermetra. Auk þess verða skrifstofur, bókasafn og fundarherbergi, sem nú eru á 1. hæð hússins, fluttar upp á þessa hæð og þannig rýmkað um starfsemina sem þar er núna.
Tilboð í verkið voru opnuð nú í sumar og hljóðaði tilboð FB Festingar upp á 78,2 milljónir sem er 0,7 % undir kostnaðaráætlun. Þrátt fyrir áætlanir um að draga úr þenslu, segir heilbirgðisráðherra svigrúm vera fyrir þessa framkvæmd þar sem málið hafi verið komið það langt í kerfinu áður en til þess kom að fresta framkvæmdum á vegum hins opinbera.
Mynd: Frá undirritun verksamningsins í morgun:
VF-mynd: Ellert Grétarsson