Lokað fyrir umferð um Stekk
Vegna framkvæmda við hringtorg á Reykjanesbraut verður lokað fyrir umferð um Stekk næstu vikurnar. Umferðarhraði hefur verið lækkaður í 50 km/klst á vinnusvæðinu.
Vegfarendum er bent á að nota mislæg gatnamót í Innri-Njarðvík eða hringtorg við Grænás. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.