Loka vegna spennumyndar í Grindavík
Spennumyndin Ég man þig, sem byggð er á skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur, verður að hluta til tekin upp í Grindavík. Bæjarstjórnar Grindavíkur hefur heimilað að afmörkuðu svæði verði lokað og munu tökur fara fram þar í tvo daga síðar í þessum mánuði. Frá þessu er greint á visir.is.
Það eru Zik Zak kvikmyndir og Sigurjón Sighvatsson sem framleiða myndina en leikstjóri hennar er Óskar Þór Axelsson sem á að baki kvikmyndina Svartur á leik.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson mun fara með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur.
Myndin verður einnig tekin upp á Vestfjörðum, meðal annars á Ísafirði og á Hesteyri.