Lögreglusveit réðist inn í Röstina
Nú fyrir stundu réðust sérsveitamenn frá lögreglunni inn í Röstina í Reykjanesbæ.
Ekki hafa fengist upplýsingar um tilefni þessarar aðgerðar, sem er nokkuð umsvifamikil að sögn sjónarvotta á vettvangi.
Lögreglan hefur um helgina leitað að hópi Pólverja vegna alvarlegs líkamsárásarmáls í Reykjavík en mennirnir voru taldir búsettir í Reykjanesbæ.
Myndin er tekin fyrir utan Röstina nú fyrir stundu.