HSS
HSS

Fréttir

Lögreglustjóri segir aðrar götur standa til boða á Ljósanótt
Föstudagur 25. ágúst 2017 kl. 06:00

Lögreglustjóri segir aðrar götur standa til boða á Ljósanótt

- Fornbílaklúbburinn ósáttur við akstursbann

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri segir öryggi hins fótgangandi borgara skipta mestu máli og því hafi ákvörðun verið tekin um að banna umferð fornbíla niður Hafnargötu á Ljósanótt.
Lögreglustjóri sagði að eina umferðin sem yrði leyfð niður Hafnargötu yrði akstur bifhjóla og hann viðurkennir í samtali við VF að það sé vissulega umdeilanlegt. „Við ræddum þetta fram og til baka í lögreglunni með öryggisnefnd hátíðarinnar og þetta var niðurstaðan. Það hefði verið stórt skref að banna hjólin líka,“ sagði Ólafur Helgi og ítrekaði að ákvörðunin væri fyrst og fremst byggð á öryggissjónarmiðum. „Ég vil benda á það að þetta er eina gatan sem við viljum ekki fá þessa umferð á. Aðrar götur geta staðið til boða fyrir þennan akstur.“

Stjórn Fornbílaklúbbs Íslands er afar ósátt við þá ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum að banna akstur fornbíla niður Hafnargötu á Ljósanótt og hvetur eigendur allra slíkra ökutækja til að sniðganga hátíðina.
„Stærsti hluti af stemmningunni fyrir eigendur og ökumenn fornbíla var að fá að keyra þarna í gegn. Það eru bara örfáir aðilar sem nenna að rúlla þarna suðureftir til að leggja bílunum sínum á eitthverju túni, en mikill meirihluti bílanna sem þarna komu voru ekki af Suðurnesjum, og því var bara best að aflýsa viðburðinum í heild sinni í stað þess að þetta yrðu bara örfáir bílar á eitthverri hallærislegri smásýningu miðað við undanfarin ár,“ sagði Rúnar Sigurjónsson, formaður Fornbílaklúbbsins á Facebook.

Bílakjarninn
Bílakjarninn