Lögregluskólinn: Þrír Suðurnesjamenn hæstir
Þrír nemendur af Suðurnesjum fengu hæstar einkunnir í Lögregluskóla ríkisins, en fyrstu önn grunnnáms lauk þann 26. apríl sl. 40 nemendur voru við nám í skólanum á önninni og var meðaleinkunn úr skólanum 7,90. Bestum árangri, 9,14 í meðaleinkunn, náði Einar Júlíusson og í næstu sætum þar á eftir voru þær Heiða Rafnsdóttir og Bjarney Sólveig Annelsdóttir. Heiða náði meðaleinkunninni 8,68, Bjarney 8,64. Skólastjóri Lögregluskólans, Arnar Guðmundsson, veitti þessum þremur nemendum sérstaka viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.Núna tekur við fjögurra mánaða starfsþjálfun hjá öllum 40 nemendunum, hún fer fram hjá lögregluembættunum í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík.
Markmiðið með starfsþjálfuninni er að nemendurnir fái innsýn í lögreglustarfið og öðlist skilning á því; að þeir þjálfist og þroskist þannig að þeir geti leyst viðfangsefni sjálfstætt; að þeir fái skilning á samhenginu milli fræðilegu kennslunnar í grunnnámi skólans og lögreglustarfsins í raun og að séu reiðubúnir til náms á þriðju önn skólans sem hefst í byrjun september.
Ljósmynd/Lögregluskóli Ríkisins: Heiða Rafnsdóttir, Einar Júlíusson og Bjarney Sólveig Annelsdóttir.