Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögregluliðin í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli sameinuð?
Þriðjudagur 25. október 2005 kl. 13:18

Lögregluliðin í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli sameinuð?

Framkvæmdanefnd um nýskipan hefur lagt til við dómsmálaráðherra að eðlilegt sé að horft verði til þess að sameina alfarið löggæslu í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli, en það síðarnefnda undir utanríkisráðuneytið. Sameining þessara tveggja liða myndi fela í sér umtalsverða eflingu löggæslu á þessu svæði, eins og gott samstarf þeirra á síðustu árum hefur sýnt. Í tillögunum er lagt til að embætti lögreglunnar í Keflavík verði svokallað lykilembætti.

Framkvæmdanefndin, sem skipuð var af Birni Bjarnasyni dóms- og kirkjumálaráðherra fyrr á þessu ári, hefur skilað ráðherra tillögum sínum um nýskipan lögreglumála. Í stuttu máli gerir nefndin þá tillögu að lögregluumdæmi í landinu verði fimmtán talsins, og þar af verði sjö skilgreind sem lykilembætti. Hlutverk lykilembættanna samkvæmt tillögunum er annars vegar að annast alfarið rannsókn og saksókn stærri og flóknari mála og hins vegar að samræma vaktskipulag milli fleiri lögregluumdæma á tilgreindu svæði. Markmið tillagnanna er að efla og styrkja löggæslu á öllum sviðum, bæði almenna löggæslu og rannsóknir sakamála.

Ráðherra hefur fallist á meginatriði tillagna nefndarinnar en nánari útfærsla þeirra og framkvæmd verður ákveðin að loknum kynningarfundum framkvæmdanefndar um allt land með lögreglustjórum, lögreglumönnum og sveitarstjórnarmönnum. Auk kynningar á tillögum nefndarinnar verður þar kallað eftir sjónarmiðum heimamanna. Stefnt er að því að efnt verði til þessara funda fyrir 1. desember 2005.

Í framkvæmdanefndinni sitja: Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri dóms- og kirkjumálaráðuneyti, formaður, Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, og Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Seyðisfirði, fyrrverandi formaður Landssambands lögregæumanna.

Tillögur framkvæmdanefndarinnar eru í heild sinni aðgengilegar á vef dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
www.domsmalaraduneyti.is/utgefid-efni/skyrslur_til_radherra/nr/1229
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024