Fréttir

Lögreglufélagið kallar eftir tafarlausum aðgerðum í húsnæðismálum
Fimmtudagur 11. apríl 2024 kl. 12:23

Lögreglufélagið kallar eftir tafarlausum aðgerðum í húsnæðismálum

Lögreglufélag Suðurnesja kallar eftir tafarlausum aðgerðum í húsnæðismálum embættisins. Þann 16. október 2023 var lögreglustöð útkallsliðsins að Hringbraut lokað vegna rakaskemmda og myglu. Viðgerð á hluta húsnæðisins stendur enn yfir. Útkallsliðið deilir nú húsnæði með rannsóknardeild, lögfræðisviði og yfirstjórn sem væri undir eðlilegum kringumstæðum besta staðan ef það húsnæði væri ekki skrifstofurými sem er ætlað rúmlega 40 starfsmönnum en hýsir nú tæplega 70 manns á dagvinnutíma. 

Lögreglumenn embættisins þurfa ad finna það hjá stjórnvöldum að starfið sem þeir sinna af mikilli elju og hugsjón sé metið að verðleikum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Lögreglufélag Suðurnesja skorar á Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir að bregðast við hið fyrsta.

Víkurfréttir fjölluðu um málið fyrir nokkrum mánuðum. Sjá hér.