Lögreglu tilkynnt um rottugang
Á þriðjudagskvöld var lögreglunni í Keflavík tilkynnt um ferðir rottu á heimili í Keflavík. Húsráðandi sagði þegar hann tilkynnti um rottuganginn að hanni hefði náð að króa rottuna af inn í stofu, en þegar lögreglumenn komu á staðinn fannst hvorki tangur né tetur af hinum óboðna og ófrýnilega gesti, þrátt fyrir mikla leit.