Lögreglan varar við veðurofsa á Suðurnesjum
Vindur blæs orðið hressilega á Suðurnesjum og veðrið á eftir að versna töluvert á næstu klukkustundum. Lögreglan á Suðurnesjum vill koma þeim tilmælum til fólks að koma hlutum í skjól sem geta fokið. Er þar átt við sorptunnur og annað lauslegt í görðum.
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur verið sett í viðbragðsstöðu en í Grindavík er spáð að vindur fari í 25 m/s um hádegið. Þar hefur farg verið sett á viðkvæm húsþök og unnið er að því að koma fiskikörum í skjól.
Foreldrar þurfa að huga að því að sækja börnin sín þegar skólahaldi er lokið í dag því vindurinn verður mikill.
Meðfylgjandi kort er af síðunni belgingur.is og sýnir vindhraða í hádeginu.