Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögreglan varar við slæmu veðri
Föstudagur 28. desember 2012 kl. 17:30

Lögreglan varar við slæmu veðri

Lögreglan á Suðurnesjum vekur athygli á slæmri veðurspá á Facabook-síðu sinni. „Vinsamlegast hugið að lausum hlutum sem geta fokið en búist er við að rokið muni einnig ná til okkar á Suðurnesjum. Fólki er bent á að fylgjast náið með upplýsingum um veður og færð,“ segir á síðunni og jafnframt fylgir eftirfarandi texti:

Viðvörun vegna norðanstórhríðar laugardaginn, 29. desember 2012.
Veðurstofan varar við óveðri á Vestfjörðum á föstudagskvöld og á laugardag um allt land, sérstaklega norðantil. Ekkert ferðaveður verður á norðanverðu landinu.

Spáin er eftirfarandi: Norðan 20-25 m/s og snjókoma á Vestfjörðum strax á föstudagskvöld en norðan 18-28 m/s um vestanvert landið á laugardagsmorgunl. Hægari vindur austanlands. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda á N-verðu landinu og á Austfjörðum, slydda SA-lands, en annars úrkomulítið. Dregur úr vindi og ofankomu vestantil um kvöldið, en hvessir þá A-lands.
Víða hefur snjóað í fjalllendi undanfarna daga, einkum á Vestfjörðum og Austfjörðum, og snjóflóðahætta getur skapast hratt þegar hvessir. Þeim tilmælum er beint til skíðafólks, vélsleðamanna og annara, sem eru á ferð á snjóflóðastöðum, að halda sig frá snjóflóðabrekkum og vera ekki á ferð, þar sem snjóflóð geta fallið. Einnig er fólki bent á að stöðva ekki farartæki sín á vegarköflum, þar sem hætta gæti verið á snjóflóðum.
Fólki er bent á að fylgjast náið með upplýsingum um veður og færð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024