Mánudagur 24. febrúar 2003 kl. 11:15
				  
				Lögreglan stöðvar starfsemi tölvusetra
				
				
				
Um helgina fór lögreglan í Keflavík inn á tvo tölvuspilasali í Reykjanesbæ, svokallað "tölvu-lan", en ábendingar hafa borist til lögreglu um þessa starfsemi og að þarna væru börn og unglingar inni langt fram eftir kvöldum.  Á föstudagskvöldið voru tveir 13 ára piltar á öðrum staðnum þegar lögreglan kom þar að kl.  23:00.Samkvæmt 20. gr. lögreglusamþykktar fyrir Reykjanesbæ, þá er svona starfsemi leyfisskyld, en sækja þarf um leyfi til lögreglustjóra sem gefur út leyfi, en það er háð umsögn bæjarstjórnar.  Í leyfi skal m.a. kveðið á um aðgang ungmenna.  Mun lögreglan stöðva þessa stafsemi þar til tilskilin leyfi liggja fyrir.