Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun
Á heimilinu fundust 50 plöntur í ræktunartjöldum í bílskúr, svefnherbergi og á gangi hússins.
Miðvikudagur 18. maí 2016 kl. 06:00

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í fyrradag. Þegar lögreglumenn bar að garði lagði þaðan mikla kannabislykt. Húsráðandi heimilaði leit og fundust þá nær 50 plöntur í ræktunartjöldum í bílskúr, svefnherbergi og á gangi húsnæðisins. Auk þess voru nær 20 plöntur í þurrkun í fataherbergi. Loks voru kannabisefni á stofuborði húsnæðisins. Húsráðandi var handtekinn á vettvangi og viðurkenndi hann eign sína á ræktuninni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005.  Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024