HSS
HSS

Fréttir

Lögreglan rænd á slysstað
Laugardagur 29. desember 2007 kl. 03:26

Lögreglan rænd á slysstað

Á slysavettvangi á Grindavíkurvegi í gærkvöldi notaði lögreglan nýjan búnað svokölluð díóðuljós, sem sett voru á Grindavíkurveginn til að vara vegfarendur við slysinu.  Þegar lögreglan var að taka saman ljósin var búið að stela einu ljósinu af vettvangi. 

Þessi ljós eru mjög sérstök, flöt með blá blikkandi díóðuljósum.  Þau eru mjög sterk þannig að óhætt er að aka yfir þau. Þau eru geymd í hleðslutösku í lögreglubílum og eru gagnslaus þeim sem hefur ekki slíka tösku.

Lögreglan biður þann sem tók ljósið að koma því til lögreglunnar á Suðurnesjum því hér er um að ræða mjög mikilvægan öryggisbúnað bæði fyrir vegfarendur og lögreglumenn á vettvangi.

 

Mynd: Frá slysstað á Grindavíkurvegi í gærkvöldi. Lögreglan var rænd á meðan hún vann á vettvangi slyssins. Þýfið er hins vegar gagnslaust þeim sem því stal. Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn