Bygg
Bygg

Fréttir

Lögreglan óskar eftir vitnum
Þriðjudagur 13. febrúar 2018 kl. 11:27

Lögreglan óskar eftir vitnum

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir vitnum að umferðaróhappi þar sem ung stúlka hljóp á bifreið sem ekið var Súlutjörnin í Reykjanesbæ. Óhappið átti sér stað 31. janúar sl. um kl. 18:20. Unga stúlkan slasaðist við óhappið og þarf lögreglan að ná tali af ökumanni bifreiðarinnar.

Samkvæmt framburði þá er um að ræða rauðan smábíl, skráningarnúmer ekki vitað. Líkur eru á því að annar hliðarspegill bifreiðarinnar hafi skemmst við óhappið. Ökumaður bifreiðarinnar var ung kona á þrítugsaldri með dökkt hár. Ökumaðurinn stöðvaði til að kanna með ástand stúlkunnar en lögreglan var ekki kölluð á vettvang. Mikilvægt er að ná tali af ökumanni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eða geta gefið lögreglu frekari upplýsingar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 2200 en einnig má senda upplýsingar í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Suðurnesjum.