Lögreglan lýsir eftir Evu Lind
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Evu Lind Guðjónsdóttur, f. 12. nóvember 1994, en hennar er saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl sl.
Eva Lind er 160 sm há, grannvaxin með sítt dökkt hár sem hún tekur yfirleitt upp í hnakkann. Ekki er vitað með klæðnað hennar.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Evu eru beðnir að hafa samband við lögregluna.