Lögreglan lýsir eftir bíl
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bílnum LUM91 sem er grár Volkswagen Golf, árgerð 2016. Bíllinn var tekinn ófrjálsri hendi 19. desember síðastliðinn frá starfsstöð bílaleigu á Keflavíkurflugvelli.
Þeir sem geta gefið upplýsingar hvar bifreiðin er niðurkomin vinsamlegast hafið samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma 444 - 2200.