Lögreglan lýsir eftir Agnesi Helgu
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Agnesi Helgu Sigurpálsdóttur 15 ára. Agnes Helga er 165 cm á hæð, grannvaxin með sítt ljósskollitað hár. Hún var klædd í dökka 66°N mittisúlpu. Þeir sem verða varir við Agnesi Helgu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299.