Fréttir

Lögreglan lýsir eftir 16 ára dreng
Þriðjudagur 6. desember 2016 kl. 16:40

Lögreglan lýsir eftir 16 ára dreng

Ísak Geir fór frá heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd á sunnudag

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Ísaki Geir Stefánssyni en hann fór frá heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd sunnudaginn 4. desember. Ísak er 16 ára gamall og var  klæddur í hermannagrænan jakka, dökkar joggingbuxur og blálitaða strigaskó. Ísak er 180-185 cm á hæð, ljóshærður með sítt hár.

Þeir sem vita um ferðir Ísaks eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.

Public deli
Public deli