Lögreglan lýsir eftir 16 ára dreng
Ísak Geir fór frá heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd á sunnudag
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Ísaki Geir Stefánssyni en hann fór frá heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd sunnudaginn 4. desember. Ísak er 16 ára gamall og var klæddur í hermannagrænan jakka, dökkar joggingbuxur og blálitaða strigaskó. Ísak er 180-185 cm á hæð, ljóshærður með sítt hár.
Þeir sem vita um ferðir Ísaks eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.