Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögreglan leitar vitna að banaslysi á Reykjanesbraut
Miðvikudagur 19. maí 2004 kl. 17:54

Lögreglan leitar vitna að banaslysi á Reykjanesbraut

Lögreglan í Keflavík óskar eftir því að vitni að umferðarslysi á Reykjanesbraut í morgun gefi sig fram við lögregluna í síma 420 2400. Í morgun kl. 06:38, barst lögreglu tilkynning um umferðarslys á Reykjanesbraut á Strandarheiði. Svo virðist sem ökumaður jeppabifreiðar sem ekið var austur Reykjanesbraut áleiðis frá Keflavík til Reykjavíkur hafi misst stjórn á bifreiðinni móts við mislæg gatnamót sem unnið er að vegna tvöföldunar Reykjanesbrautarinnar, skammt vestan við Kúagerði. Bifreiðin mun hafa lent utaní vegriði brúarinnar og síðan á  ljósastaur austan hennar. Bifreiðin mun síðan hafa oltið og hafnað á öðrum ljósastaur austan fráreinar við gatnamótin þar sem hún stöðvaðist á hjólunum.
Tvennt var í bifreiðinni og mun ökumaðurinn, karlmaður um fimmtugt, hafa látist samstundis, en farþeginn, kona á fimmtugsaldri, slasaðist lítils háttar og var flutt með sjúkrabifreið á Landsspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
Að svo stöddu er ekki unnt að birta nafn hins látna.
Hafi vegfarendur orðið vitni að slysinu eru þeir vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögrelguna í Keflavík í síma 420-2400.

VF-ljósmynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024