Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögreglan í ljósaátaki
Laugardagur 15. september 2007 kl. 12:45

Lögreglan í ljósaátaki

Þrjátíu og fjórir ökumenn voru stöðvaðir í nótt á Stór-Reykjanessvæðinu fyrir að fullnægja ekki reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Voru flestir þeir ökumanna á eineygðum ökutækjum og fengu þeir áminningu. Í mánuðinum er lögreglan einmitt í átaki varðandi ljósabúnap bifreiða.

Um kl. 4 í nótt varð enn eitt slysið við þrengingar á Reykjanesbraut þegar fólksbifreið ók utan í steyptan vegstólpa og hafnaði eftir það utan vegar.

Ökumanni og farþega var ekið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsl þeirra reyndust minniháttar. Bifreiðin var talsvert skemmd.

Þá var ökumaður var stöðvaður á Mánagötu í Grindavík fyrir að aka á öfugum vegarhelmingi og að vera með þokuljósin tendruð. Hann var ekki heldur með ökuskírteini sitt meðferðis og verður hann kærður fyrir brotin þrjú að því er segir í dagbók lögreglu.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024