Lögreglan í Keflavík lýsir eftir vitnum
Lögreglan í Keflavík var kölluð að Stóru-Vogaskóla í Vatnsleysustrandarhreppi skömmu fyrir kl. 10:00 í morgun. Farið hafði verið inn í nýbygginguna við skólann um nýafstaðna helgi og þar rótað til innandyra. Engu var stolið úr nýbyggingunni en byggingakrani sem er á lóðinni hafði verið gangsettur en talsverða kunnáttu þarf til að gera það.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík, beint númer lögreglunnar er 420 2400.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík, beint númer lögreglunnar er 420 2400.