Lögreglan í húsleit á Suðurnesjum
	Á annan tug manna voru handteknir í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embættis ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Suðurnesjum og lögreglunnar í Árnessýslu gegn vélhjólagengi, en einstaklingarnir voru handteknir í húsnæði samtakanna í Hafnarfirði og víðar. Aðgerðirnar hófust í gærkvöldi og í framhaldinu var framkvæmd húsleit í fyrrnefndu húsnæði og einnig víðar á höfuðborgarsvæðinu, sem og á Suðurnesjum og í Árnessýslu.
	
	Við húsleitirnar var m.a. lagt hald á ætlað þýfi, fíkniefni og margskonar eggvopn. Á áttunda tug lögreglumanna tóku þátt í aðgerðunum, sem voru nokkuð umfangsmiklar, auk starfsmanna tollgæslunnar sem aðstoðuðu við húsleitir með sérþjálfuðum hundum.
	
	Flestir hinna handteknu eru meðlimir í vélhjólagenginu og hafa jafnframt áður komið við sögu hjá lögreglu.
	
	Hinir sömu voru færðir til vistunar í fangageymslum lögreglu, en yfirheyrslur munu standa fram á nótt og verður síðan framhaldið í fyrramálið.
	
	Óljóst er hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir einhverjum hinna handteknu, slíkt fer eftir framvindu rannsóknarinnar. Vegna rannsóknarhagsmuna er ekki unnt að greina frá tilefni aðgerðanna á þessu stigi málsins, segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				