Lögreglan heimsækir börn á Gimli
Lögreglan kom með látum í heimsókn á leikskólann Gimli í Reykjanesbæ. Tveir lögreglubílar komu með ljósin á og sírenur í gangi. Út um gjallarhornið heyrðist „Allir frá lögreglan er komin.“ Börnin litu við og stóðu stjörf af aðdáun.
Tilefni heimsóknarinnar var hinn árlegi hjóladagur leikskólans. Börnin komu með hin ýmsu farartæki. Flest með hjól, en þó mátti sjá hlaupahjól, dúkkuvagna og traktor. Lögreglan kom til að ganga úr skugga að allir væru með hjálm á höfði sem og að þeir sitji rétt.
VF-mynd/Margrét