HSS
HSS

Fréttir

Lögreglan finnur aðra kannabis ræktun í heimahúsi
Laugardagur 30. maí 2020 kl. 10:52

Lögreglan finnur aðra kannabis ræktun í heimahúsi

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði.  Ræktunin var í tveimur tjöldum í svefnherbergjum, á annað hundrað plöntur samtals. Í öðru húsnæði, sem lögregla gerði einnig húsleit í, að fenginni heimild, fundust svo fáeinar plöntur til viðbótar. Sami einstaklingurinn stóð fyrir ræktuninni á báðum stöðum. Lögregla fjarlægði bæði plöntur og ræktunartól til eyðingar.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem lögregla stöðvar umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri  upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook - síðu lögreglunnar á Suðurnesjum: https://www.facebook.com/lss.abending/

Bílakjarninn
Bílakjarninn