Bygg
Bygg

Fréttir

Lögreglan: Breytingin kostar meira
Fimmtudagur 10. apríl 2008 kl. 13:26

Lögreglan: Breytingin kostar meira

Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu í morgun með lögreglustjóranum á Suðurnesjum og fulltrúum löggæslu, öryggisgæslu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli.
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir fundinum til að ræða þær skipulagsbreytingar sem dómsmálaráðuneytið hefur boðað á embættinu og fallið hafa í grýttan jarðveg á Suðurnesjum, ekki síst hjá starfsmönnum embættisins sem undrast mjög þessar fyrirætlanir í ljósi þess að ekki er liðið nema rúmt ár síðan embættin voru sameinuð.

Með því að aðskilja yfirstjórn lög-, toll- og öryggisgæslu á flugvellinum á að nást fram stjórnsýsluleg og rekstrarleg ábyrgð, en margir hafa efast um rökin fyrir breytingunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Guðni fullyrðir í samtali við RUV í hádeginu að skipulagsbreytingarnar muni leiða til meiri fjárútláta hins opinbera.

Guðni segir að nú verði stjórnarflokkarnir að gera ráðherra það skiljanlegt að breytingarnar séu óráðlegar. Hann segir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sannfærst af rökum embættismannanna sem allir voru sammála um að breytingarnar væru hvorki til bóta faglega né fjárhagslega, skv. sem fram kemur í frétt RUV.

Fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Árni Mathiesen fjármálaráðherra, hefur lagt fram frumvarp til breytinganna. Það hefur verið samþykkt í ríkisstjórn en þingmenn Samfylkingarinnar hafa ekki afgreitt það úr þingflokki sínum.

Tekist var á um málið á Alþingi í gær, sem sjá má í annarri frétt hér á vefnum.