Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Lögreglan biður eigendur dróna að fljúga þeim ekki á Ljósanótt
Miðvikudagur 2. september 2015 kl. 16:07

Lögreglan biður eigendur dróna að fljúga þeim ekki á Ljósanótt

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent út tilkynningu þess efnis að eigendur „dróna“ hvíli þá á Ljósanótt en Öryggisnefnd hátíðarinnar óskaði eftir því við hann og þá barst ábending frá manni sem þekkir vel til notkunar ómannarðra flygilda (dróna).


Bent hefur verið á að umrædd flygildi kunni að bila og nefnd hafa verið dæmi þess og einnig að stjórnendur á jörðu niðri hafi tapað stjórn slíkra tækja og þau flogið út í buskann. Ákveðnar reglur gilda um loftför samkvæmt lögum um loftferðir nr. 60/1998. Í þeim er ekki að finna sérstök ákvæði  um þá nýbreytni sem felst í þeirri tækni sem ómönnuð loftför byggja á eða flug þeirra almennt.

Með vísan til framkominnar óskar og þess að mikilvægt er að gæta öryggis almennra borgara og einnig með vísan til lögreglulaga nr. 90/1996, 1. greinar þeirra sem fjallar um hlutverk lögreglu, einkum 2. töluliðar, a. liðar um gæzlu almannaöryggis og b. liðar, en þar er fjallað um öryggi borgaranna og að lögregla skuli koma í veg fyrir að því sé raskað, eru það eindregin tilmæli lögreglustjóra að flug ómannaðra loftfara eða flygilda hvers konar, sem ganga undir nafninu drónar verði ekki yfir byggð eða þar sem mannfjöldi er samankominn á Ljósanæturhátíð í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024