Sunnudagur 14. september 2003 kl. 14:42
Lögreglan að komast á slóð innbrotsþjófs
Lögreglan í Keflavík er að komast á slóð innbrotsþjófs sem lét greipar sópa á níu stöðum í Reykjanesbæ í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Keflavík er staðfest að sami aðilinn átti hlut að öllum innbrotunum. Unnið er að rannsókn málanna.