Lögreglan á Suðurnesjum tístir fram á nótt
	Í dag, föstudag, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað Löggutíst. Í löggutístinu munu Lögreglan á Suðurnesjum, Lögreglan á Norðurlandi eystra og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessarra lögregluliða frá því kl.16 til kl.04 á laugardagsmorguninn.
	
	Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.
	
	Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.
	
	Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á www.twitter.com/sudurnespolice
	
	Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglanNE – Það má einnig sjá hér www.twitter.com/logreglanNE
	
	Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan
	
	
	
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				