Piltur tekinn tvívegis réttindalaus á bifhjóli
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ungan mann á bifhjóli á Njarðvíkurbraut í fyrradag. Hann reyndist ekki hafa ökuréttindi á hjólið og þar sem hann var undir 18 ára aldri var forráðamönnum og barnavernd gert viðvart um málið.
Var þetta í annað sinn sem lögregla hafði afskipti af piltinum af þessum sökum.