Föstudagur 15. janúar 2010 kl. 08:44
Lögregla setti upp vegatálma vegna innbrots
Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um eitt innbrot í nótt. Þjófurinn komst á brott með flatskjá og hefur ekki fundist. Málið er í rannsókn.
Fram kom á Bylgjunni í morgun að lögregla hafi sett upp vegatálma á Reykjanesbraut og leitað í bílum á leið til höfuðborgarinnar, en án árangurs.