Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögregla og slökkvilið börðust við eld í trjárækt
Mánudagur 15. maí 2006 kl. 19:40

Lögregla og slökkvilið börðust við eld í trjárækt

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan börðust síðdegis við þó nokkurn sinueld á skógræktarsvæði við Rósaselstjarnir ofan við byggðina í Keflavík.

Varðeldur hafði verið kveiktur í skógræktinni og af ummerkjum að ráða hafði verið gerð tilraun til að poppa poppkorn á eldinum sem síðan barst í skógræktina. Nokkuð af trjám varð eldinum að bráð og einnig logaði glatt í sinu og mosa á svæðinu.

Jörð er mjög þurr á þessum slóðum eftir þurrka síðustu daga. Slökkviliðið flutti vatn á svæðið á tankbíl og einnig var vatni dælt úr tjörn á staðnum.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er ekki vitað hver kveikti eldinn en ljóst að þarna voru börn eða ungmenni á ferðinni. Það er því ljóst að það fer einhver í háttinn í kvöld með skógareld á samviskunni.

Mynd: Frá vettvangi rétt fyrir kvöldmat. VF/Hilmar Bragi
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024