Lögregla og sjúkralið vöktu steinsofandi mann á Stapanum

Því var næsta mál á dagskrá að kalla til lögreglu hún fór á staðinn ásamt sjúkrabifreið frá Brunavörnum Suðurnesja. Í þann mund er hjálpin barst varð vart við lífsmark í bílnum. Ökumaðurinn hafði orðið mjög þreyttur eftir langa vakt á flugvallarsvæðinu og fann sér rólegan stað til að leggjast til svefns. Honum varð brugðið þegar bæði lögregla og sjúkralið komu að honum og vöktu með látum. Allt fór vel að lokum, en tilkynnandi taldi hugsanlegt að viðkomandi hafi svipt sig lífi, þar sem hann var hreyfingarlaus í draumalandinu á Stapanum. Maðurinn fékk sér að lokum gönguferð um svæðið og ákvað að lokum að fara heim og undir sæng – þar sem mögulegt væri að sofa í friði.