Föstudagur 17. febrúar 2006 kl. 09:24
Lögregla og björgunarsveit kölluð að Keflavíkurbryggju í veðurofsa
Óskað var eftir aðstoð lögreglu og Björgunarsveitarinnar Suðurnes í gærkvöldi vegna tveggja báta í Keflavíkurhöfn. Landfestar þeirra voru að losna sökum veðurofsans sem skapaði óróa í höfninni. Vel gekk að festa bátana kyrfilega þannig að þeir fóru ekki neitt.