Föstudagur 4. nóvember 2011 kl. 11:08
Lögregla leysti upp ungmennasamkvæmi

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð til laust fyrir klukkan 23.00 í gærkvöldi vegna samkvæmis ungmenna í sal í Reykjanesbæ. Um 170 manns voru á staðnum þegar lögreglan mætti og var þar talsverð ölvun. Samkvæmið var leyst upp og gestir sendir burt.