Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lögregla kölluð til vegna ölvunar og óspekta í Flugstöðinni
Laugardagur 13. ágúst 2016 kl. 12:25

Lögregla kölluð til vegna ölvunar og óspekta í Flugstöðinni

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum sjö dögum sinnt sex útköllum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna ölvunarástands og óspekta flugfarþega. Í gær var ölvuðum farþega neitað um að fara í flug til Varsjár þar sem hann hafði verið að  angra farþega í flugvél sem hann kom með hingað til lands. Í fyrradag hafði lögregla afskipti af öðrum flugfarþega sem lét öllum illum látum við afgreiðsluhlið í flugstöðinni. Sá ætlaði til Las Palmas en fékk ekki að fara um borð í vélina vegna ástands síns. Hann brást afar illa við afskiptum lögreglu svo handtaka varð hann og færa á lögreglustöð, þar sem hann var vistaður í fangaklefa. Í gær var lögregla enn kölluð í flugstöðina. Var þar kominn sami aðili, enn ölvaður, og nú með leiðindi við fólk sem á vegi hans varð. Hann var handtekinn aftur og færður í fangaklefa enn á ný.

Tveir farþegar til viðbótar, sem voru á leið til Bandaríkjanna voru svo illa á sig komnir að ekki þótti stætt á að hleypa þeim um borð fyrr en þeir hefðu sofið úr sér.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Loks datt ölvaður farþegi, sem kom frá Washington á leið til Stokkhólms, í gólfið í flugstöðinni og skarst lítillega í andliti. Gert var að sárum viðkomandi sem fékk ekki að halda ferð sinni áfram að svo stöddu, heldur lá leiðin í fangaklefa um sinn.