Löggan stöðvaði 130 bíla en hafði „lítið“ upp úr krafsinu
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 128 bifreiðir í gærdag við gömlu steypustöðina í Njarðvík. Um var að ræða hefðbundið eftirlit. Voru ökumenn beðnir um að blása í áfengismæli og réttindi þeirra athuguð. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu, að einum undanskildum sem var ekki í öryggisbelti.
Á síðustu dögum hafa tugir ökumanna verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu og fáeinir verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.